Tenglar

Hlunnindasýningin

Gamla samkomuhúsinu við Maríutröð

(á sama stað og Upplýsingamiðstöðin)
 

Sími 434 7830

Netfang info@reykholar.is
  

Hlunnindasýningin á Reykhólum er helguð gjöfum náttúrunnar við Breiðafjörð og nýtingu þeirra, einkum á fyrri tíð. Fuglarnir gáfu egg og kjöt í matinn og verðmætan dún í sængur og kodda. Selurinn gaf kjöt og spik og skinnið var notað til klæðagerðar. Hér má kynnast veiðum á sel og fugli og hirðingu eggja og dúns og meðhöndlun þessara nytja eins og tíðkaðist um aldir og jafnvel fram á okkar daga.

 

Breiðafjörðurinn og héruðin í kring hafa þá sérstöðu, að jafnvel í mestu hallærum og harðindum hérlendis varð þar aldrei bjargarskortur, svo er fjölbreyttum hlunnindum fyrir að þakka. Á sýningunni getur að líta ýmsa þá fugla sem gáfu björg í bú, auk andstæðunnar, hafarnarins volduga, sem var illræmdur vágestur í æðarvarpi.

 

Hlunnindasýningin er í sama húsi og Upplýsingamiðstöð ferðafólks og Bátasafn Breiðafjarðar við afleggjarann niður að þorpinu á Reykhólum, rétt áður en komið er að bensínstöðinni og versluninni Hólakaupum.

 

Atburðadagatal

« Maí 2012 »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Héðan og þaðan