Reykhólavefurinn
Reykhólavefurinn er frétta- og fróðleiksvefur sem Reykhólahreppur heldur úti. Honum er ætlað að birta og geyma upplýsingar og gögn varðandi sveitarfélagið og rekstur þess, svo og að flytja fréttir úr héraðinu.
Íbúar Reykhólahrepps eru hvattir til að nýta sér þá þjónustu sem vefurinn býður. Jafnframt eru þeir (og aðrir) hvattir til að senda ábendingar um fréttnæmt efni í héraðinu og annað sem þeir telja að eigi erindi á þennan vef. Allar ábendingar um villur, óvirka tengla o.s.frv. eru vel þegnar.
Sendið póst í netfangið vefstjori@reykholar.is eða hringið í síma 434 7880 (skrifstofa hreppsins) og komið ábendingum og efni á framfæri.
