Markaðs- og áfangastofa Vestfjarða
Markað- og áfangastofa Vestfjarða
Áfangastaðir
Upplifun
Gisting & veitingar
Ferðaupplýsingar
Vestfjarðastofa sinnir ferðaþjónustu svæðisins undir merkjum Markaðsstofu Vestfjarða og Visit Westfjords. Verkefni í tengslum við ferðaþjónustu eru unnin í samstarfi við sveitarfélögin á svæðinu sem og ferðaþjónustufyrirtækin.
Markaðsstofa Vestfjarða starfar sem deild innan Vestfjarðastofu og sinnir markaðssetningu, innviðamálum og stefnumótun ferðaþjónustu svæðisins. Helstu hlutverk Markaðsstofu Vestfjarða eru:
- Kynning svæðisins
- Umsjón með heimasíðu og samfélagsmiðlum (www.westfjords.is)
- Útgáfa kynningarefnis, bæklinga og korta
- Blaðamannaferðir í samstarfi við Íslandsstofu
- Ferðasýningar á lykilmörkuðum
- Gerð og eftirfylgni áfangastaðaáætlunar
Markaðsstofa Vestfjarða hélt utan um vinnu við Áfangastaðaáætlun Vestfjarða, en sú áætlun var gefin út seinni hluta árs 2018, en unnar hafa verið uppfærslur á samantekt 2020 og 2022. Í Áfangastaðaáætluninni er sett fram heilsteypt stefna fyrir svæðið í ferðaþjónustu.