Fara í efni

Leikskólakennari óskast

Leikskólakennari óskast

Um er að ræða 100% stöðu leikskólakennara á Hólabæ, leikskóladeild Reykhólaskóla á Reykhólum frá og með 1. janúar 2025

Menntunar og hæfniskröfur:

  • Leikskólakennararéttindi eða önnur uppeldismenntun
  • Góð íslenskukunnátta
  • Áhugi, reynsla og hæfni í starfi með börnum
  • Góðir samskiptahæfileikar og færni í mannlegum samskiptum
  • Jákvæðni og frumkvæði ·
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Hreint sakavottorð

 

Fáist ekki menntaðir leikskólakennarar eða fólk með aðra uppeldismenntun og/eða reynslu af vinnu með börnum kemur til greina að ráða leiðbeinendur tímabundið í lausar stöður. Einnig kemur til greina að ráða í minna starfshlutfall.

Laun samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags.

Umsóknarfrestur er til 30. nóvember 2024.

Upplýsingar um starfið, umhverfið og húsnæðismöguleika veitir Anna Margrét Tómasdóttir skólastjóri Reykhólaskóla, sími; 434-7731 og á skolastjori@reykholar.is. Nánari upplýsingar um skólann er á https://reykholaskoli.is/

Fríðindi í starfi

Flutningsstyrkur fyrir starfsfólk sem flytur til Reykhólahrepps