Fara í efni

Starf félagsmálastjóra Stranda og Reykhólahrepps er laust til umsóknar

Félagsmálastjóri

Félagsmálastjóri Stranda og Reykhólahrepps er laust til umsóknar.

Félagsmálastjóri hefur umsjón með framkvæmd stefnumörkunar í þeim málum sem heyra undir hans málaflokk og eftirlit með framkvæmd samninga, laga og reglugerða um félagsþjónustu. Hann situr í verkefnahópi Byggðasamlags Vestfjarða um málefni fatlaðs fólks, hefur yfirumsjón með barnaverndarmálum samkvæmt barnaverndarlögum nr. 80/2002 og sér um eftirfylgd og ráðgjöf samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991.

Félagsmálastjóri vinnur náið með sameiginlegri velferðarnefnd sveitarfélaganna fjögurra, hefur yfirumsjón með fundum nefndarinnar auk þess að sitja í þverfaglegum teymum og ráðum.

Félagsmálastjóri ber ábyrgð á rekstri Félagsþjónustu Stranda og Reykhólahrepps, gerð fjárhagsáætlana auk annarra tilfallandi verkefna sem heyra undir hans fagsvið. Starfið kallar því á talsverða teymis vinnu og samskipti við fagfólk og aðra á svæðinu auk sjálfstæðra vinnubragða.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Meistarapróf í félagsráðgjöf.
  • Stjórnunarreynsla æskileg.
  • Reynsla og framhaldsmenntun í stjórnun æskileg.
  • Reynsla af starfi við félagsþjónustu, málefni fatlaðra eða sambærileg störf mikilvæg.
  • Framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum.
  • Forystu- og skipulagshæfileikar.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti.

Leitað er eftir einstaklingi sem hefur vilja og getu til að leiða áframhaldandi uppbyggingu og þróun á félagsþjónustu á svæðinu. Starfið krefst ferðalaga um svæðið og þarf félagsmálastjóri að hafa bílpróf og bíl til umráða.

Frekari upplýsingar um starfið

Launakjör eru skv. kjarasamningi og viðkomandi stéttarfélags. Starfshlutfall er 100%.

 

Umsóknarfrestur er til og með 17. júlí næstkomandi.

Sótt er um starfið á www.vinnvinn.is

Við hvetjum öll áhugasöm, óháð kyni og uppruna, til að sækja um.

Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf á íslensku þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um hæfni viðkomandi til að gegna starfinu.

Umsjón með starfinu hafa Jensína K. Böðvarsdóttir (jensina@vinnvinn.is) og Margrét Stefánsdóttir (margret@vinnvinn.is).