Fara í efni

Tómstundafulltrúi

Reykhólahreppur auglýsir laust til umsóknar starf Tómstundafulltrúa. Um er ræða starfshlutfalli 90% til eins árs, með möguleika á fastráðningu.

Tilgangur starfsins er að hafa faglega umsjón með öllu menningar-, íþrótta- og

tómstundastarfi Reykhólahrepps í góðu samstarfi við hlutaðeigandi aðila. Hér er

fjölbreytt og skemmtilegt tækifæri fyrir skapandi og skipulagðan einstakling til að

móta nýtt starf í vaxandi samfélagi. Næsti yfirmaður fulltrúans er sveitarstjóri.

Markmið og verkefni:

  • Verkefnavinna og stefnumótun fyrir tómstundamál
  • Hefur mannaforráð.
  • Umsjón og þróunarvinna með starfsemi félagsmiðstöðvarinnar Skrefsins.
  • Er stuðningur sveitarfélagsins við félagasamtök sem eru með skipulagða
  • íþrótta- og tómstundastarfsemi í sveitarfélaginu, á grundvelli samninga.
  • Vinnur í nánu samstarfi við stjórnendur grunnskóla og íþróttamannvirkja.
  • Verkefnastjórn við hátíðahöld og aðra viðburði á vegum sveitarfélagsins.
  • Vinnur í nánu samstarfi við stjórnendur grunnskóla við skipulagningu lengdrar viðveru á vegum skólans.
  • Ýtir undir starfsemi sem felur í sér tómstundir fullorðinna.
  • Önnur verkefni á þessu sviði sem viðkomandi er falið af sveitarstjóra.

Hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun á sviði tómstunda- og félagsmálafræði, eða önnur menntun sem nýtist í starfi.
  • Góðir forystu-, skipulags- og samskiptahæfileikar.
  • Reynsla og þekking af tómstundastarfi.
  • Mikill áhugi á velferð íbúa og hæfni til að eiga samskipti við alla aldurshópa.
  • Frumkvæði, jákvætt hugarfar og hugmyndaauðgi.

Launakjör erum samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og

viðkomandi stéttarfélags.

Hreint sakavottorð er skilyrði fyrir ráðningu.

Umsækjendur af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um starfið. Nánari

upplýsingar veita Ingibjörg Birna Erlingsdóttir, sveitarstjóri, sveitarstjori@reykholar.is og Jóhanna Ösp Einarsdóttir, oddviti, johanna@reykholar.is.

Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf í síðasta lagi 1. september 2024.

Umsóknir berist á netfangið, sveitarstjori@reykholar.is Umsóknarfrestur er til 5. ágúst 2024.

Sótt um starf á vef sveitarfélagsins https://www.reykholar.is/is/moya/formbuilder/index/index/umsokn-um-starf