Fara í efni

Verkefnisstjóri á Reykhólum

Vestfjarðastofa, með stuðningi Byggðastofnunar, auglýsir eftir verkefnisstjóra í Reykhólahreppi. Verkefnisstjóri gegnir hlutverki leiðtoga verkefnisins Brothættra byggða í Reykhólahreppi ásamt verkefnisstjórn og starfar hann í umboði hennar að aðgerðum til eflingar byggðar og mannlífs í Reykhólahreppi.

Verkefnið er til fimm ára og er hluti af verkefnum Brothættra byggða og er samstarfsverkefni Byggðastofnunar, Vestfjarðastofu og Reykhólahrepps.

Um er að ræða 100% starf með starfsstöð á Reykhólum.

Hæfniskröfur:

Menntun sem nýtist í verkefninu. Háskólamenntun æskileg

Haldbær starfsreynsla og reynsla af verkefnastjórn

Þekking, skilningur og reynsla af byggðamálum mikilvæg

Þekking á styrkjaumhverfi og skrifum umsókna í innlenda og erlenda sjóði æskileg

Góð tölvu- og tæknifærni

Frumkvæði, jákvæðni, samstarfsfærni og sjálfstæð vinnubrögð eru mikilvægir eiginleikar.

 

Helstu verkefni:

Fylgja eftir ákvörðunum verkefnisstjórnar

Hafa frumkvæði að nýjum verkefnum á svæðinu

Upplýsingamiðlun og skýrslugerð til íbúa og samstarfsaðila

Íbúafundir og þátttaka í samfélagsverkefnum í sveitarfélaginu

Aðstoð við gerð styrkumsókna og viðskiptaáætlana

Önnur verkefni í samstarfi við sveitarfélagið samkvæmt samkomulagi

 

Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Nánari upplýsingar má finna á www.vestfirdir.is Upplýsingar um verkefnið Brothættar byggðir er að finna á heimasíðu Byggðastofnunar (www.byggdastofnun.is).

Nánari upplýsingar veitir: Sigríður Ó. Kristjánsdóttir (sirry@vestfirdir.is)
Umsóknarfrestur er til 11. desember 2024.