Fara í efni

Árný Huld ræðst í verslun og veitingasölu á Reykhólum

02.09.2024
Fréttir
Árný Huld Haraldsdóttir og Ingibjörg Birna Erlingsdóttir undirrita samninginn
Árný Huld Haraldsdóttir og Ingibjörg Birna Erlingsdóttir undirrita samninginn

Í morgun undirrituðu þær Árný Huld Haraldsdóttir og Ingibjörg Birna Erlingsdóttir sveitarstjóri, samning um leigu á verslunarhúsnæði Reykhólahrepps.

Árný mun hefja verslunar- og veitingarekstur á Reykhólum innan tíðar og er stefnt að því að opna í október.

Til að byrja með er ætlunin að vera með venjulegan heimilismat í hádeginu og helstu nauðsynjavörur í versluninni.

Hugmyndin er líka að halda viðburði af einhverju tagi fyrir alla aldurshópa.

Þegar nær dregur verður auglýstur opnunartími og fleira sem máli skiptir.