Fara í efni

Bólusetning gegn Influensu og Covid-19

09.10.2024
Fréttir

Bólusetning gegn Influensu og Covid-19

Taka má báðar bólusetningarnar samtímis

 

Bólusett verður eftirfarandi daga:

Þriðjudagur 15. október í Búðardal

Miðvikudagur 23. október á Reykhólum og í Búðardal

ATH. að panta þarf tíma í bólusetningar í síma 432 1450

 

Þau sem ekki komast á uppgefnum dagsetningum vinsamlegast hafið einnig samband við heilsugæsluna og við finnum tíma.

 

Inflúensubólusetning – Sóttvarnalæknir mælist til að eftirtaldir áhættuhópar njóti forgangs við inflúensubólusetningar:

 

  • Allir einstaklingar 60 ára og eldri.
  • Öll börn fædd 1.1.2020–30.6.2024, sem hafa náð 6 mánaða aldri þegar bólusett er.
  • Öll börn og fullorðnir sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdómum, offitu, sykursýki, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum.
  • Barnshafandi konur.
  • Heilbrigðisstarfsmenn sem annast einstaklinga í ofangreindum áhættuhópum.

Bóluefnið er forgangshópum að kostnaðarlausu.

 

Covid-19 bólusetning Sóttvarnalæknir mælist til að eftirtaldir áhættuhópar njóti forgangs við COVID-19 bólusetningar:

 

  • Allir einstaklingar 60 ára og eldri.
  • Öll börn og fullorðnir sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdómum, offitu, sykursýki, illkynja sjúkdómum eða eru ónæmisbæld af völdum lyfja eða sjúkdóma.
  • Barnshafandi konur, eftir fyrsta þriðjung meðgöngu.
  • Heilbrigðisstarfsmenn sem annast einstaklinga í ofangreindum áhættuhópum.

Bóluefnið er forgangshópum að kostnaðarlausu.

 

Starfsfólk HVE Búðardal /Reykhólum