Fara í efni

Brák íbúðafélag auglýsir íbúð lausa til leigu á Reykhólum

15.08.2024
Fréttir

Brák íbúðafélag hses. auglýsir eftir umsóknum um leigu á íbúð við Hólatröð 7 á Reykhólum. Um er að ræða fjögurra herbergja, 95,4 m² íbúð í raðhúsi.

Markmið Brákar íbúðafélags hses. er að bæta húsnæðisöryggi tekju- og eignaminni fjölskyldna og einstaklinga.

Um útleigu íbúðarinnar gilda lög um almennar íbúðir nr. 52/2016, í lögunum/reglugerð eru tilgreind tekju- og eignamörk ásamt viðmiði um greiðslubyrði leigu.

Umsókn um leigu

Fylla skal út umsóknareyðublað: (umsóknareyðublað hér) og senda á netfangið: brakibudafelag@brakibudafelag.is ásamt afriti af síðasta skattframtali og afriti af þremur síðustu launaseðlum umsækjenda.

Umsóknarfrestur er til og með 21. ágúst 2024.

Brák íbúðafélag hses. úthlutar íbúðinni þegar farið hefur verið yfir allar umsóknir.