Fara í efni

Breytt fyrirkomulag á sorpflokkun, nýjar tunnur

21.11.2024
Fréttir

Íslenska gámafélagið hefur dreifingu á nýjum tunnum til íbúa í næstu viku. Dreifingin verður í tengslum við tæmingu grænu tunnunar. Eftir tæmingu skal því aðgreina sorp í tunnur í samræmi við merkingar og leiðbeiningar gámafélagsins.

Minnt er á íbúafund í tengslum við sorpflokkun sem haldin verður í matsal Reykhólaskóla mánudaginn 25. nóvember kl. 20:30, en þar munu fulltrúar Íslenska gámafélagsins mæta og fara yfir breytinguna á flokkunarkerfinu.