Búðin hlaut hæsta styrk til verslana í dreifbýli
Innviðaráðherra hefur staðfest tillögur valnefndar um verkefnastyrki til verslana í dreifbýli á grundvelli byggðaáætlunar til verslana. Að þessu sinni var sautján milljónum kr. úthlutað til sex verslana í dreifbýli fyrir árið 2025. Markmiðið er að styðja við dagvöruverslanir í minni byggðarlögum fjarri stórum byggðakjörnum á fámennum markaðssvæðum til að viðhalda mikilvægri grunnþjónustu. Eftirtaldar verslanir fengu styrki og ýmist eru veittir rekstrarstyrkir eða styrkir til endurbóta eða sjálfvirknivæðingar.:
- Bakka-Búðin ehf., Reykhólum – 5 m.kr. rekstrarstyrkur
- Verzlunarfjelag Árneshrepps – 3 m.kr. rekstrarstyrkur
- Hríseyjarbúðin – 2,5 m.kr. styrkur til endurbóta og sjálfvirknivæðingar
- North East Travel ehf, Bakkafirði – 1,5 m.kr. rekstrarstyrkur
- Gunnubúð ehf., Raufarhöfn – 3 m.kr. styrkur til endurbóta
- Verslunarfélag Drangsness – 2 m.kr. rekstrarstyrkur
Þriggja manna valnefnd fór yfir umsóknirnar og gerði tillögur til ráðherra. Í valnefnd sátu þau Elín Gróa Karlsdóttir, verkefnisstjóri hjá Ferðamálastofu, Sigurður Árnason, sérfræðingur á Byggðastofnun, sem jafnframt er formaður og Snorri Björn Sigurðsson fyrrverandi forstöðumaður þróunarsviðs Byggðastofnunar. Með valnefnd starfaði Sigríður K. Þorgrímsdóttir sérfræðingur hjá Byggðastofnun. Skipun valnefndar og mat umsókna voru í samræmi við reglur um úthlutun innviðaráðherra á framlögum sem veitt eru á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir árin 2022-2036.
Af vef Stjórnarráðs