Búðin opnuð 4. nóvember
31.10.2024
Fréttir
Árný Huld Haraldsdóttir mun opna Búðina á Reykhólum þann 4. nóvember.
Það verður kærkomið að geta verslað á Reykhólum á ný, en búðin hefur ekki verið opin í rúmt ár. Síðast ráku verslunina Helga Guðmundsdóttir og Arnþór Sigurðsson, sem voru búin að vera með hana í tæplega tvö og hálft ár.
Verslunin verður opin alla virka daga milli kl. 16:00 og 19:00 og veitingasalan alla virka daga í hádeginu, frá kl. 11:30 til 13:30.