Fara í efni

Embla Dögg Bachmann ráðin í starf verkefnisstjóra

14.01.2025
Fréttir
Embla Dögg Bachmann
Embla Dögg Bachmann

Embla Dögg Bachmann hefur verið ráðin hjá Vestfjarðastofu í starf verkefnisstjóra Brothættra byggða í Reykhólahreppi. Um er að ræða 100% starf með starfsstöð á Reykhólum. Hún mun stjórna því verkefni ásamt verkefnisstjórn. Verkefnið er til 5 ára og er hluti af samstarfsverkefni Byggðastofnunar, Vestfjarðastofu og Reykhólahrepps.

Embla hefur töluverða reynslu sem kemur til með að nýtast henni vel í þessu starfi, hún sat í sveitarstjórn Reykhólahrepps síðasta kjörtímabil, skipulagði og sá um Reykhóladaga á liðnu sumri, var kosningastjóri Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi og náði þar að hafa stjórn á hóp af fjörugu fólki.

Auk þessa stundar hún nám í viðburðastjórnun við Háskólann á Hólum og er liðlega hálfnuð með það.

Embla á rætur að rekja að Reykhólum og hefur búið hér undanfarin ár. Hún hefur einlægan áhuga á að leggja sitt af mörkum til að sveitarfélagið blómstri.