Fyrsta raðhúsið af þremur að rísa á Reykhólum
18.09.2024
Fréttir
Starfsmenn Tekta ehf. eru að reisa nýtt fjögurra íbúða raðhús á Reykhólum. Þeir hófust handa í gær, 17. sept. og komin er upp önnur hliðin, allir skilveggir milli íbúða, hálfir gaflarnir og fyrsta einingin í seinni hliðina. Stefnt er að því að húsið verði komið undir þak um helgina.
Veggeiningarnar eru með klæðningu að utan, einangrun og frágengnum gluggum og hurðum. Í þakeiningunum er burðarvirki og einangrun en bárujárnið og þakpappinn er sett á þegar allt er komið upp.
Það er Tekta ehf. í Borgarnesi sem byggir þetta hús, Reykhólahreppur mun svo kaupa það þegar það er tilbúið undir tréverk. Eins og áður segir eru 4 íbúðir í húsinu, 55 m2 hver.