Hunda- og kattahreinsun í Reykhólahreppi 7. nóv.
31.10.2024
Fréttir
Fimmtudaginn 7. nóvember fer fram lögbundin hunda- og kattahreinsun í Reykhólahreppi.
Hreinsunin fer fram í áhaldahúsi sveitarfélagsins kl. 16 – 18.
Ormahreinsun hunda og katta er innifalin í leyfisgjaldi.
Óskráð dýr er hægt að skrá á staðnum.
Dýralæknir býður einnig upp á bólusetningar, fyrir þær þarf að greiða sérstaklega.
Ida Bergit Rognsvag dýralæknir annast hreinsunina.