Fara í efni

Komur skemmtiferðaskipa til Flateyjar

06.03.2025
Fréttir
SilverWind er eitt þessara skipa, mynd af Wikipedia
SilverWind er eitt þessara skipa, mynd af Wikipedia

14 skemmtiferðaskip komu til Flateyjar í fyrrasumar með alls 2.115 gesti.

Árið 2023 komu 9 skip með 1.220 farþega og árið 2022 komu 14 skip með 1.893 farþega.

Aðeins 6 skipakomur eru skráðar á þessu ári, en  leiða líkur að því að breytingar á tollfrelsi skemmtiferðaskipa hafi eitthvað með það að segja, en mörg skip afbókuðu ferðir fyrir síðustu áramót þegar útlit var fyrir að tollafrelsið yrði afnumið um áramótin. Nú liggur fyrir að tollafrelsi er framlengt til 1. janúar 2026.