Líkamsræktin lokuð um óákveðin tíma
11.04.2024
Fréttir
Líkamsræktin sem starfrækt er í húsnæði Grettislaugar verður lokuð frá og með deginum í dag um óákveðin tíma.
Ungmennafélagið Afturelding, í samvinnu við sveitarfélagið, stendur að viðhaldi húsnæðis og endurnýjunar á tækjum og tólum líkamsræktarinnar.
Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem lokunin veldur. Tilkynning mun berast þegar líkamsræktin opnar að nýju í bættri aðstöðu.
Stjórn Ungmennafélagsins Aftureldingar.