Fara í efni

Ný brú á Fjarðarhornsá

15.10.2024
Fréttir

Fyrir skömmu var lokið við að steypa nýja brú á Fjarðarhornsá. Hún leysir af hólmi einfalda brú frá árinu 1957.

Þetta verk felst í smíði á tveimur brúm og vegtengingum að þeim. Hin er yfir Skálmardalsá. Brúin yfir Skálmardalsá er skemmra á veg komin, þar er búið að steypa undirstöður undir brúarstöpla og steypa miðjustöpulinn.

Framkvæmdir frestuðust nokkuð þar sem bjóða þurfti verkið út þrisvar sinnum. Í fyrsta sinn barst ekkert tilboð í verkið, í annað sinn var öllum tilboðum hafnað þar sem þau voru öll langt yfir áætluðum verktakakostnaði.

Tilboð voru opnuð í þriðja sinn í desember 2023. Samið var VBF Mjölni ehf. sem átt lægsta tilboðið í verkið. Vestfirskir verktakar ehf. eru undirverktakar og sjá um brúarsmíðina.

Páll Halldór Björgúlfsson umsjónarmaður hjá Vegagerðinni segir helstu áskoranir þær að framkvæmdir eru takmarkaðar meðan á stangveiðitímabili stendur, eða frá 20. júní og fram í miðjan september en á því tímabili er jarðvegsvinna í eða við árfarveg ekki heimil. „Við þurftum því að vera komnir upp úr árfarveginum áður en veiðitímabilið byrjaði.“

Önnur áskorun er fjarlægð frá þéttbýli. „Steypan kemur til dæmis alla leið úr Borgarnesi og það er vandasamt að halda steypunni góðri á þessari löngu leið. Það þurfa allar tímasetningar að standast.“

Gert er ráð fyrir að smíði brúarinnar yfir Fjarðarhornsá verði lokið í desember á þessu ári en smíði brúar og vegagerð við Skálmardalsá í desember 2025. Gömlu brýrnar verða rifnar og fjarlægðar.

Helstu upplýsingar úr framkvæmdafréttum Vegagerðar.