Ný hleðslustöð fyrir bíla í Djúpadal
20.04.2025
Fréttir

Djúpidalur
Fyrir skömmu voru settar upp hleðslustöðvar fyrir bíla í Djúpadal. Það er annars vegar 22 kW stöð og hins vegar 30 kW hraðhleðsla.
Það er fyrirtækið Íslensk Bílorka sem setur upp þessar hleðslustöðvar.
Með þessum stöðvum eru komnar 3 hleðslustöðvar í Reykhólahreppi, auk stöðvarinnar í Djúpadal eru stöðvar á Reykhólum og í Bjarkalundi, en þar eru öflugustu hleðslustöðvarnar.