Samið við Verklok ehf. um gatnagerð á Reykhólum
30.03.2023
Fréttir
![Ingibjörg Birna Erlingsdóttir sveitarstjóri og Brynjólfur Víðir Smárason](/static/news/md/ingibjorg_birna_erlingsdottir_og_brynjolfur_vidir_smarason.jpg)
Ingibjörg Birna Erlingsdóttir sveitarstjóri og Brynjólfur Víðir Smárason
Verksamningur um gatnagerð við Hellisbraut á Reykhólum var undirritaður á dögunum.
Gengið var að tilboði Verkloka ehf. á Reykhólum. Ráðist er í þessa gatnagerð vegna þess að fyrirhuguð er bygging fjögurra íbúða raðhúss við Hellisbraut.
Meðfylgjandi mynd tók Ásgerður Guðbjörnsdóttir þegar Ingibjörg Birna Erlingsdóttir sveitarstjóri og Brynjólfur Víðir Smárason gengu frá samningunum.