Sérstakur húsnæðisstuðningur til foreldra eða forsjáraðila 15-17 ára barna
11.09.2024
Fréttir
Félagsþjónusta Stranda og Reykhólahrepps minnir á að foreldrar/forsjáraðilar 15-17 ára barna sem eru í framhaldsskólum fjarri lögheimili eiga rétt á sérstökum húsnæðisstuðningi. Sjá reglur hér http://www.strandabyggd.is/stjorn.../tilkynningar/skra/2557/.
Umsóknir berist til Hlífar Hrólfsdóttur félagsmálastjóra á tölvupóstfangið felagsmalastjori@strandabyggd.is, fylla þarf út umsóknareyðublað http://www.strandabyggd.is/stjornsysla/umsoknir/skra/2591/, senda með afrit af húsaleigusamningi ásamt staðfestingu á skólavist.