Fara í efni

Skráning á húsnæði fyrir Grindvíkinga

12.11.2023
Fréttir

Í skráningarblaðinu þarf að gefa upp:

  • staðsetningu húsnæðis
  • tegund húsnæðis
  • fjölda rúma og
  • hversu lengi húsnæðið stendur til boða

Samband íslenskra sveitarfélaga hvetur landsmenn til að skrá mögulegt húsnæði hjá Rauða krossinum, það einfaldar mjög utanumhald en fjölmörg hafa nú þegar boðið húsnæði á samfélagsmiðlum.

Farið verður yfir boð um húsnæði og haft samband við tengilið ef af verður. Ekki er víst að haft verði samband við alla.

Smelltu hér til að komast í skráningarblað Rauða krossins.

Reykhólahreppur sendir hlýjar kveðjur til Grindvíkinga.

Sveitarstjórn Reykhólahrepps vonar að þróun mála fái farsælan en hvetur íbúa og húseigendur í sveitarfélaginu Reykhólahreppi að fylgjast vel með þróun mála og vera reiðubúin að veita aðstoð ef þarf á næstu dögum