Skrifstofa Reykhólahrepps lokuð um hátíðarnar - breytt opnun á föstudögum á nýju ári
20.12.2024
Fréttir
Afgreiðsla skristofunnar verður lokuð, auk hátíðisdagana, á þorláksmessu og virku dagana á milli jóla og nýárs. Skrifstofan er opin aftur fimmtudaginn 2. janúar 2025.
Opnunartími skrifstofu verður með breyttu sniði á föstudögum 2025, en þá verður afgreiðslunni lokað kl. 12:00 í stað 14:00.