Fara í efni

Stefnt að opnun Búðarinnar í október

11.09.2024
Fréttir
Árný Huld Haraldsdóttir
Árný Huld Haraldsdóttir

Kæru íbúar í Reykhólahreppi

Fyrir stuttu síðan óskaði ég, Árný Huld Haraldsdóttir, eftir að fá verslunarhúsnæði Reykhólahrepps leigt. Nú höfum við náð samningum og þá þarf að bretta upp ermar og halda af stað.

Það tilkynnist því hér með að ég mun hefja verslunar- og veitingarekstur á Reykhólum. Vanda þarf til verks og margt sem þarf að gera áður rekstur hefst en stefnan er tekin á opnun í október. Opnunartími verður auglýstur þegar nær dregur.

Ætlunin er að byrja á að vera með hádegismat í veitingasalnum og bjóða upp á venjulegan heimilismat. Síðan verður verslun með nauðsynjavörum – og örugglega líka smá sælgæti – opin part úr degi. Þar að auki er áætlað að halda viðburði fyrir alla aldurshópa.

Sjáumst í Búðinni!