Fara í efni

Svæðisskipulag Vestfjarða 2025-2050

27.05.2024
Fréttir

Skipulagslýsing og opnir fundir

Hafin er vinna að tillögu að svæðisskipulagi fyrir Vestfirði með aðild allra sveitarfélaganna átta á Vestfjörðum.

Svæðisskipulag mun marka meginstefnu og framtíðarsýn í sameiginlegum hagsmunamálum sveitarfélaganna á Vestfjörðum. Það á að draga fram þætti sem efla samfélagið á Vestfjörðum með frumkvæði, þekkingu og samvinnu að leiðarljósi.

Svæðisskipulagsnefnd Vestfjarða hefur hafið kynningu á skipulagslýsingu sem er verkefnislýsing fyrir vinnslu Svæðisskipulags Vestfjarða 2025-2050, sbr. 1. mgr. 23. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Verkefnislýsingin gerir grein fyrir tildrögum og forsendum skipulagsvinnunar, viðfangsefnum skipulagstillögu og umhverfismati hennar ásamt áföngum skipulagsvinnunar og samráði.

Skipulagslýsingin er aðgengileg í Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar á slóðinni: https://skipulagsgatt.is/issues/2024/603

Opið er fyrir athugasemdir um skipulagslýsinguna til 26. júní 2024 og er hægt að koma umsögnum á framfæri í skipulagsgáttinni.

Jafnframt er vakin athygli á opnum íbúafundum í þessari viku þar sem þátttakendum gefst kostur á að koma að mótun svæðisskipulags. Íbúafundirnir verða milli kl. 16:30 og 18:30 á eftirtöldum stöðum:

  1. maí – Félagsheimilinu á Patreksfirði.
  2. maí – Edinborgarhúsinu á Ísafirði.
  3. maí – Félagsheimilinu á Hólmavík.
  4. maí – Reykhólaskóla á Reykhólum.

 

Svæðisskipulagsnefnd Vestfjarða