Tilkynning frá Gámaþjónustunni - sorphirða 22. des.
Vegna slæmrar veðurspár á mánudaginn kemur, þorláksmessudag, þá ætlar Íslenska gámafélagið að flýta sorphirðu skv sorphirðudagatali um einn dag.
Sorphirða mun því fara fram sunnudaginn 22. desember.