Fara í efni

Vestfirðingum öllum boðið á íbúafundi

23.05.2024
Fréttir

Í næstu viku verða haldnir íbúafundir um alla Vestfirði þar sem heimafólki er boðið að borðinu til að hafa áhrif á gerð svæðisskipulags fyrir Vestfirði og Sóknaráætlun Vestfjarða 2025-2029. Með því að mæta og taka þátt getur fólk haft sitt að segja um hvað fer inn í áætlanir og er okkur sem komum að vinnunni það mikið í mun að íbúar sjálfir upplifi eignarhald yfir þeim.

Fundirnir verða sem hér segir:

  1. maí Félagsheimili Patreksfjarðar
  2. maí Edinborgarhúsið á Ísafirði
  3. maí Félagsheimili Hólmavíkur
  4. maí Reykhólaskóli

Allir fundirnir hefjast klukkan 16:30 og verður boðið upp á barnapössun á meðan á þeim stendur. Í lok fundanna verður boðið upp á grillaðar pylsur.

Allir Vestfirðingar hjartanlega velkomnir!

Hér má lesa meira um fundina